content image

FORD ÁBYRGÐ

Ábyrgð nýrra bíla

Á Íslandi skv. íslenskum lögum er í megindráttum þannig að kaupandi hefur rétt til að bera fram kvörtun um galla í bíl í allt að tvö ár frá afhendingu bifreiðarinnar. Það er lögbundið að veita einstaklingum (neytendum) þennan rétt en lögaðilar (fyrirtæki) geta samið sig frá lögbundinni ábyrgð bíla. Geri þeir það ekki gildir lögbundni tveggja ára kvörtunarrétturinn.

5 ára ábyrgð og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð

Brimborg býður nú alla nýja Ford bíla sem keyptir eru hjá Brimborg með 5 ára ábyrgð eða 100.000 km., hvort sem á undan kemur og 8 ára drifrafhlöðuábyrgð eða að 160.000 km., hvort sem á undan kemur. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir bæði fólksbíla og atvinnubíla. Ford bílar sem ganga að öllu leiti (100% hreinir rafbílar) eða einhverju leiti fyrir rafmagni (tengiltvinn rafbílar) og eru þ.a.l. með drifrafhlöðu þá er ábyrgðin á drifrafhlöðunni 8 ár.

Með reglulegri þjónustu og viðtækri verksmiðjuábyrgð nýrra Ford bíla frá Brimborg tryggir þú þér meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.

ÞJÓNUSTUSKOÐANIR OG VIÐGERÐIR

Til að viðhalda ábyrgðinni þarf að viðhalda bifreiðinni samkvæmt ferli framleiðanda eins og lýst er í eiganda og þjónustuhandbók bílsins. Mæta þarf árlega eða á 20.000 km fresti í þjónustuskoðun hvort sem á undan kemur tími eða km. Kaupandi ber kostnað af reglulegu þjónustueftirliti.

Athygli er vakin á því að 5 ára Ford ábyrgð tók gildi 15.3.2020 en fyrir þann tíma var ábyrgð Ford bifreiða 2 ár skv. skilmálum.

Hvert sný ég mér varðandi ábyrgðarviðgerð?

Þú ferð með Ford bílinn þinn ásamt eiganda- og þjónustuhandbók á Ford verkstæði Brimborgar eða til viðurkennds þjónustuaðila Ford utan Reykjavíkur. Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Ford geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.

Panta tíma í ábyrgðarviðgerð á verkstæði Ford

Þú getur pantað tíma á verkstæði Ford í Noona appinu. Þegar þú hefur bókað tíma þá færð þú mjög fljótlega staðfestingu í sms með nánari leiðbeiningum. Síðan munum við minna þig á tímann fjórum dögum áður en þú átt að mæta og aftur minnum við á daginn áður. Þú finnur upplýsingar um verkstæði Ford hér.

content image