Skilmálar
Notkunarskilmálar fyrir vefsvæði Ford á Íslandi: www.ford.is
Notkun á vefsvæði Ford á Íslandi, www.ford.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum. Vinsamlega kynnið ykkur þá vandlega áður en þið notið vefsvæðið. Með notkun á vefsvæðinu samþykkir þú að vera bundin(n) af þessum notkunarskilmálum.
Takmörkun á afnotum:
Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu Ford og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. Ford áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á Ford. Athygli er vakin á því að Ford vörumerkið er skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota það, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.
Efni vefsvæðisins:
Vefsvæði Ford á Íslandi inniheldur upplýsingar um þær vörur sem Ford á Íslandi býður til sölu hér á landi skv. samkomulagi við birgja hverju sinni. Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager og í einstaka tilfellum er eingöngu um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. Ford á Íslandi og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt til að breyta vöruframboði án fyrirvara, breyta verði án fyrirvara og breyta búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem söluráðgjafar Ford á Íslandi veita. Ford á Íslandi leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.
Verð á vöru og þjónustu:
Verð vöru- og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð, lýsing vöru, staðalbúnaðar og verð aukabúnaðar fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu Ford á Íslandi. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og Ford á Íslandi beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er ávallt með virðisaukaskatti og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma en nánar er kveðið á um verðskilmála í kaupsamningi. Verð á rekstrarleigu er miðað við mánaðarlegar greiðslur í 36 mánuði sem geta verið háðar gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra.
Vernd persónuupplýsinga:
Ford á Íslandi mun ekki nota þær persónuupplýsingar sem þú veitir fyrirtækinu í gegnum vefsvæðið til að senda þér upplýsingar eða tilboð ef þú óskar ekki eftir því. Ford á Íslandi mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té umræddar upplýsingar.
Tenging við önnur vefsvæði:
Ford á Íslandi ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði Ford á Íslandi og eru með öllu ótengdir Ford á Íslandi. Jafnframt ber Ford á Íslandi ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðang að vefsvæði Ford á Íslandi.
Takmörkun ábyrgðar:
Ford á Íslandi tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. Ford á Íslandi áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.
Lögsaga og dómstólar:
Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.