Ford Explorer Collection er kominn í sýningarsal

07.08.2026
content image

Ford Explorer Collection

Ford Explorer í Collection útfærslu er kominn í sýningarsal Ford að Bíldshöfða 6. Um er að ræða glæsilegan fjórhjóladrifinn rafmagnsjeppa í sérstakri útfærslu sem aðeins verður framleidd í takmörkuðum fjölda eintaka. Explorer Collection sækir innblástur í íþróttir og útivist og sameinar kraftmikið útlit, vandaða innréttingu og ríkulegan búnað.

Sérkenni sem sjást strax

Cactus Grey liturinn er eingöngu í boði fyrir Explorer Collection og myndar áberandi andstæðu við svart þakið, svartan neðri hluta framstuðarans og 20 tommu svartar Collection álfelgur. Sportrendur á hurðum og við aftasta hliðargluggann fullkomna svipinn og gefa bílnum kraftmikið og eftirtektarvert yfirbragð.

Ævintýraandinn heldur áfram í innanrýminu þar sem Black Onyx er ráðandi. Appelsínugul öryggisbelti og appelsínugular áherslur á sætishliðum skapa sterka andstæðu við dökka innréttinguna. Sætin eru með sérstöku, slitsterku áklæði sem sækir innblástur í vandaðan íþróttafatnað og undirstrikar sportlegan svip Collection útfærslunnar.

Öflugur fjórhjóladrifinn rafmagnsjeppi

Ford Explorer Collection er búinn 77 kWh drifrafhlöðu, skilar 340 hestöflum og er með fjórhjóladrifi. Drægni er allt að 526 km samkvæmt WLTP og hámarkshleðsluafköst í hraðhleðslu eru 185 kW.

Hálfrafdrifið dráttarbeisli er hluti af Collection útfærslunni og dráttargetan er allt að 1.800 kg. Explorer Collection hentar því vel fyrir fjölbreytt ferðalög, hvort sem farangurinn er í skottinu, á hjólafestingu eða í eftirvagni.

Rafmagn og tækni fyrir ferðalagið

Pro Power Onboard gerir kleift að nýta rafhlöðu bílsins sem aflgjafa fyrir rafmagnstæki. Kerfið getur skilað allt að 2,3 kW og 230 volta rafmagnstengi í farangursrýminu auðveldar að hlaða fartölvur eða knýja annan búnað á ferðalaginu.

SYNC Move tengikerfinu er stjórnað með 14,6 tommu stillanlegum snertiskjá í miðju mælaborðsins. Þráðlaus tenging við Apple CarPlay og Android Auto er innbyggt. Læsanlegt geymsluhólf er fyrir aftan skjáinn og 17 lítra MegaConsole geymslan á milli framsætanna rúmar vel stærri hluti sem gott er að hafa við höndina.

Þægindin eru ekki síður ríkuleg. Rafdrifið ökumannssæti er stillanlegt á 12 vegu og er með minni og mjóbaksnuddi. Framsætin og stýrið eru upphitanleg og rafdrifinn afturhleri með skynjara auðveldar aðgengi að farangursrýminu.

Ford Explorer Collection til sýnis að Bíldshöfða 6

Ford Explorer Collection er nú til sýnis hjá Ford að Bíldshöfða 6. Þar gefst tækifæri til að skoða sérstök hönnunaratriði, vandaða innréttingu og ríkulegan búnað bílsins í návígi.

Lestu meira um Ford Explorer

Skoðaðu Ford Explorer í vefsýningarsal

Komdu og skoðaðu Ford Explorer Collection á meðan færi gefst.

Uppgefin drægni miðast við fulla hleðslu og WLTP mælingar. Raunveruleg drægni ræðst meðal annars af hitastigi, aksturslagi, leiðarvali, ástandi rafhlöðu og notkun búnaðar í bílnum.