Ford Mustang Mach-E er tilnefndur til þrennra verðlauna
16.03.2022

Ford Mustang Mach-E er tilnefndur til þrennra verðlauna í Heimsbílaverðlaununum 2022! World Car Awards.
Heimsbíll ársins
Hönnun árins
Rafbíll ársins
Dómnefndin samanstendur af 102 alþjóðlegum bílablaðamönnum frá 33 löndum og verður sigurvegari tilkynntur 13. apríl 2022.
Ford Mustang Mach-E er glænýr, 100% hreinn rafbíll, frábær ferða- og fjölskyldubíll frá Ford með magnaða aksturseiginleika.
Hann er einstaklega vel hannaður fyrir íslenskar aðstæður; langdrægur, rúmgóður draumaferðarafbíll með 98 kWh drifrafhlöðu sem veitir mikla drægni. Hann er kraftmikill og hraðskreiður og fáanlegur með fjórhjóladrifi.
Langdrægur
- Langdrægur á rafmagni með allt að 610 km. drægni
- Rúmgóður draumaferðarafbíll
- Stór 98 kWh drifrafhlaða með eldsnögga hraðhleðslu
- Magnaður 15,5 " snertiskjár
- Alltaf heitur! Með forhitara, upphitanlegt stýri og hita í framrúðu
Fjórhjóladrifinn
- Öflugt fjórhjóladrif og klár í vetraraksturinn
- Kraftmikill 351 hestöfl og 580 Nm tog
- Hraðskreiður 5,1 sek í 100 km/klst
- Stór 98 kWh drifrafhlaða með eldsnögga hraðhleðslu
- Framúrskarandi 540 km drægni
Kynntu þér í Vefsýningarsal nýrra Ford bíla úrval Ford Mustang Mach-E rafbíla sem við eigum á lager eða eru á leiðinni til Íslands. Kauptu þinn rafbíl á netinu.