Ford Mustang Mach-E GT er kraftmikill og hraðskreiður, fjórhjóladrifinn rafbíll með magnaða aksturseiginleika. Hann er 487 hestöfl, togið er 860 Nm og upptakið aðeins 3,7 sek í 100km hraða enda bregðast báðir rafmótorarnir strax við og auka til muna stöðuleika bílsins. Advanced MagneRide aðlögunarhæfa fjöðrunarkerfið gerir hann að alveg einstaklega skemmtilegum akstursbíl og Brembo hemlakerfið tryggir öryggið.
Ford Mustang Mach-E er 100% hreinn rafbíll, frábær ferða- og fjölskyldubíll frá Ford með magnaða aksturseiginleika. Mustang er sannkölluð goðsögn í bílaheiminum og nú er hann alrafmagnaður. Hann er einstaklega vel hannaður fyrir íslenskar aðstæður; langdrægur, rúmgóður draumaferðarafbíll með 98 kWh drifrafhlöðu sem veitir mikla drægni og eldsnögga hraðhleðslu. Hann er gríðarlega kraftmikill, hraðskreiður og fjórhjóladrifinn.
KOMDU Í REYNSLUAKSTUR
Skemmtileg upplifun
Ráðgjafar Ford á Íslandi taka vel á móti þér þegar þú kemur og prófar Ford Mustang Mach-E. Búðu þig undir skemmtilega upplifun!